|
Föstudagur, 09 Júlí 2010 13:12 |
|
Skrifstofa SAMFOK er lokuð vegna sumarleyfa frá og með 12. júlí til 3. ágúst. |
|
|
Söfnum góðum minningum í sumar - SAMAN í sólinni |
|
Miðvikudagur, 30 Júní 2010 09:22 |
|
Nú er sumarið komið fyrir alvöru, veðurblíðan leikur við landann og margir á faraldsfæti um helgar. Útihátíðir, útilegur og sumarbústaðaferðir eru hluti af viðfangsefnum Íslendinga yfir sumarið og tilvalið er fyrir fjölskylduna að heimsækja slíkar uppákomur saman. Mikill árangur hefur náðst í vinnu gegn unglingadrykkju og eru foreldrar lykilatriði þegar kemur að forvörnum varðandi áfengi og önnur vímuefni.
|
|
Lesa meira...
|
|
Nýtt menntaráð Reykjavíkurborgar |
|
Föstudagur, 18 Júní 2010 12:41 |
|
Kosið var í menntaráð á fyrsta fundi nýrrar borgarstjórnar þriðjudaginn 15. júní. Oddný Sturludóttir verður formaður nýs menntaráðs, sem jafnframt mun fara með málefni leikskólaráðs. SAMFOK hefur átt áheyrnarfulltrúa á menntaráðsfundum.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Saman í sólinni - fjölskyldan í fyrirrúmi |
|
Föstudagur, 25 Júní 2010 12:18 |
|
Undanfarin sumur hefur SAMAN hópurinn staðið fyrir ýmsum uppákomum þar sem minnt er á mikilvægi samveru fjölskyldunnar. Þetta árið er engin undantekning og verður annars vegar staðið fyrir skemmtidagskrá á Akureyri og hins vegar haldin skemmtileg örsögusamkeppni þar sem vegleg verðlaun eru í boði fyrir alla fjölskylduna.
|
|
Lesa meira...
|
|
Fimmtudagur, 10 Júní 2010 13:59 |
|
Nú er sólin hæst á lofti, grunnskólanemendur komnir í kærkomið sumarfrí og foreldrarnir farnir að hugsa sér til hreyfings. Engu að síður er nauðsynlegt að hafa í huga að hlúa að þeim grundvallarreglum sem alltaf eru og eiga að vera til staðar. Útivistartíminn er í fullu gildi og er um að gera að njóta lífsins - saman.
Söfnum góðum minningum í sumar
www.samanhopurinn.is
|
|
|
<< Byrja < Fyrra 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 1 af 21 |