|
Áheyrnarfulltrúi gagnrýnir vinnubrögð skóla- og frístundasviðs |
|
Miðvikudagur, 01 Febrúar 2012 16:57 |
|
Bryndís Jónsdóttir áheyrnarfulltrúi foreldra grunnskólabarna í skóla- og frístundaráði lagði fram eftirfarandi bókun á fundi ráðsins í dag:
Fulltrúi foreldra í skóla- og frístundaráði gerir alvarlegar athugasemdir við vinnubrögð skóla- og frístundasviðs varðandi ákvarðanatöku um tímabundinn flutning nemenda á miðstigi Breiðagerðisskóla yfir í Háaleitisskóla (Hvassaleiti).
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Mánudagur, 30 Janúar 2012 13:31 |
|
Á næstu vikum verða haldnir fundir í nokkrum grunnskólum Reykjavíkur undir heitinu Foreldar gegn einelti. Markmið verkefnisins er að skoða með hvaða hætti foreldrar geta komið að fyrirbyggjandi aðgerðum gegn einelti. Foreldrafélög í grunnskólum Reykjavíkur geta sótt um þátttöku í verkefninu sér að kostnaðarlausu og eru enn nokkrar dagsetningar lausar. Umsóknir og fyrirspurnir sendist á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
.
|
|
Lesa meira...
|
|
Samráðsfundur fulltrúa foreldra í skólaráðum |
|
Föstudagur, 13 Janúar 2012 15:30 |
|
Miðvikudaginn 18. janúar er fulltrúum foreldra í skólaráðum Reykvískra grunnskóla boðið að mæta á samráðsfund hjá SAMFOK ef næg þáttaka fæst. Farið verður yfir hlutverk skólaráðs og skólaráðsfulltrúa. Kjörið tækifæri til að hitta fulltrúa úr öðrum skólum, bera saman bækur og læra hvert af öðru. Skráning á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
stendur til hádegis þriðjudaginn 17. janúar. Verið velkomin. |
|
|
Samráðsfundi skólaráðsfulltrúa frestað |
|
Þriðjudagur, 17 Janúar 2012 17:39 |
|
Vegna dræmrar skráningar sem hugsanlega skýrist af handboltaáhuga skólaráðsfulltrúa ;) er fundinum sem fyrirhugaður var miðvikudagskvöldið 18. janúar frestað að sinni. Nýr fundur boðaður fljótlega.
|
|
Þriðjudagur, 20 Desember 2011 00:00 |
|
SAMFOK óskar foreldrum grunnskólabarna og öðrum samstarfsaðilum gleðilegra jóla og gæfuríks komandi árs. Þökkum gott samstarf á árinu sem er að líða. |
|
|
<< Byrja < Fyrra 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 1 af 41 |