|
Íslensku menntaverðlaunin afhent |
|
Miðvikudagur, 09 Júní 2010 10:21 |
|
Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, veitti Íslensku menntaverðlaunin í Mýrarhúsaskóla á Seltjarnarnesi þriðjudaginn 8. júní. Verðlaunin eru eru veitt í fjórum flokkum en þau eru bundin við grunnskólastarfið.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Foreldraverðlaun Heimilis og skóla |
|
Miðvikudagur, 02 Júní 2010 13:48 |
|
Foreldraverðlaun Heimilis og skóla – landssamtaka foreldra voru afhent í 15. sinn þann 1. júní í Þjóðmenningarhúsinu. Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra afhenti verðlaunin. Handhafar Foreldraverðlaunanna 2010 eru Vinafjölskyldur í Vesturbæjarskóla, verkefni Margrétar Gylfadóttur, Sesselju Ólafsdóttur og Maríu Helenu Sarabia, foreldra í Vesturbæjarskóla.
|
|
Lesa meira...
|
|
Föstudagur, 28 Maí 2010 14:24 |
|
Breytingar urðu á stjórn SAMFOK á aðalfundi félagsins í gær, 27 maí. Guðrún Valdimarsdóttir, hagfræðingur, var kosin formaður en Hildur Björg Hafstein gaf ekki kost á sér til áframhaldandi formennsku. Þorsteinn Ingi Víglundsson, verkfræðingur, kemur nýr sem aðalmaður inn í stjórnina og til vara þær Helga Andrea Margeirsdóttir félagsráðgjafiog Áslaug Björgvinsdóttir lögfræðingur.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Nýr áheyrnarfulltrúi SAMFOK í Menntaráði Reykjavíkur |
|
Þriðjudagur, 01 Júní 2010 11:48 |
|
Á aðalfundi SAMFOK var kosinn nýr áheyrnarfulltrúi í Menntaráð Reykjavíkur. Áheyrnarfulltrúi hefur málfrelsi og tillögurétt á fundum ráðsins. Bryndís Jónsdóttir framkvæmdastjóri var kosin áheyrnarfulltrúi SAMFOK en Guðrún Valdimarsdóttir nýkjörinn formaður samtakanna er varamaður. |
|
Miðvikudagur, 19 Maí 2010 11:39 |
|
Aðalfundur SAMFOK verður haldinn í Álftamýrarskóla þann 27. maí n.k. kl. 20. Allir foreldrar grunnskólabarna í Reykjavík eiga rétt á setu á aðalfundi SAMFOK með málfrelsi og tillögurétti. Við hvetjum ykkur til að bjóða ykkur fram til starfa og leggja ykkar af mörkum til að standa vörð um menntun og þroska barnanna okkar.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
<< Byrja < Fyrra 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 3 af 22 |