|
Velferð barna í fyrirrúmi |
|
Mánudagur, 01 Desember 2008 00:00 |
|
Stjórn og framkvæmdastjóri SAMFOK taka undir áskorun Félags- og tryggingamálaráðuneytis, Heilbrigðisráðuneytis, Menntamálaráðuneytis, Barnaverndarstofu, Landlæknis, Lýðheilsustöðvar, Umboðsmanns barna, BUGL/LSH og Vinnueftirlitsins:
,,Íslendingar standa nú á miklum tímamótum sem hafa víðtæk áhrif á unga sem aldna. Mikilvægt er að huga sérstaklega að velferð barna og unglinga á þessum tímum.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Forvarnardagurinn 6. nóvember |
|
Fimmtudagur, 06 Nóvember 2008 00:00 |
|
Fimmtudaginn 6. nóvember verður haldinn Forvarnardagur í öllum grunnskólum landsins. Í 9. bekkjum verður dagskrá helguð baráttunni gegn fíkniefnum þar sem áhersla er lögð á uppbyggilegar forvarnir og þátttöku ungmennanna sjálfra.
|
|
Lesa meira...
|
|
Fimmtudagur, 02 Október 2008 10:04 |
|
Margar fyrirspurnir hafa borist SAMFOK varðandi skólaráðin.
Við leggjum til að stjórn foreldrafélags hvers skóla boði foreldra sem fyrst til fundar þar sem kosið verður í skólaráð. Við leggjum til að kosnir verði tveir fulltrúar og tveir til vara. Þar sem aðalfundur fer fram að hausti er eðlilegt að þessi liður fari inn í dagskrá aðalfundarins en í öðrum tilfellum þarf að boða fund sérstaklega.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Alþjóðlegur dagur gegn ofbeldi á börnum |
|
Mánudagur, 20 Október 2008 00:00 |
Alþjóðlegur dagur gegn ofbeldi á börnum er 20. október n.k. og af því tilefni boða Barnaheill, Save the Children, á Íslandi til málþings í hátíðarsal Háskóla Íslands, Aðalbyggingu 2. hæð, frá kl. 13:30 - 16:00. Á málþinginu verður fjallað um aðstæður barna á Íslandi, birtingarmyndir ofbeldis og hvaða leiðir eru færar til að sporna við því, sjá nánar hér
|
|
Sunnudagur, 31 Ágúst 2008 16:27 |
|
Nú eru grunnskólar borgarinnar að hefja nýtt skólaár, börn, foreldrar og starfsólk mæta hress og endurnærð í skólann. Við hjá SAMFOK viljum bjóða foreldra 6 ára barna sérstaklega velkomin í hópinn og vonum að skólaganga barnanna gangi sem allra best. Við hvetjum foreldra til að taka virkan þátt í samstarfinu um hvert einstakt barn, sýna námi barnsins áhuga, styðja það og hvetja. Enn fremur er mikilvægt að sinna vel samstarfinu um skólann, t.d. á vettvangi foreldrafélagsins og að lokum samstarfinu um hópa og bekki.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
<< Byrja < Fyrra 21 22 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 21 af 22 |