|
Mánudagur, 17 Maí 2010 14:56 |
|
Á vefsvæði Samtaka - svæðisráðs foreldra nemenda í grunnskólum Akureyrar má finna fróðlega umfjöllun um aðgang barna og ungmenna að tölvuleikjum sem eru bannaðir og sýna oft á tíðum mikið ofbeldi og ýmislegt annað sem ekki er við hæfi barna. Smelltu á þennan link http://samtaka.net/?page_id=96 til að kynna þér málið betur. |
|
|
Vilt þú hafa áhrif á umræðu um skólamál |
|
Mánudagur, 10 Maí 2010 15:37 |
|
Láttu þig ekki vanta á opinn fund með frambjóðendum til borgarstjórnarkosninga á Grand Hótel Reykjavík þriðjudaginn 11. maí kl. 20. Allir hjartanlega velkomnir.
|
|
Lesa meira...
|
|
Hvað segja frambjóðendur um skólamál í Reykjavík? |
|
Fimmtudagur, 06 Maí 2010 10:21 |
|
Þriðjudaginn 11. maí n.k. stendur SAMFOK fyrir opnum fundi um skólamál með frambjóðendum til borgarstjórnarkosninganna í vor. Fundurinn hefst kl. 20 með framsögu fulltrúa stjórnmálaflokkanna en síðan munu þeir sitja fyrir svörum fundargesta. Foreldrar grunnskólabarna í Reykjavík eru sérstaklega hvattir til að mæta. |
|
|
Föstudagur, 07 Maí 2010 12:55 |
|
Á þessum skemmtilega vef www.natturuskoli.is er að finna margskonar fróðleik um útikennslu auk upplýsinga um það sem er á döfinni í Náttúruskóla Reykjavíkur hverju sinni. |
|
Er gæðum skólamáltíða ábótavant? |
|
Þriðjudagur, 04 Maí 2010 12:21 |
|
SAMFOK barst erindi frá áhyggjufullum foreldrum sem höfðu gert úttekt á matseðlum í mörgum grunnskólum borgarinnar. Í þeirri úttekt kom í ljós að í einhverjum þeirra er meginuppistaða skólamáltíða unnar kjötvörur og önnur forunnin matvæli sem sjaldnast eru talin til hollrar matvöru.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
<< Byrja < Fyrra 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 4 af 22 |