|
Bryndís Jónsdóttir nýr framkvæmdastjóri |
|
Mánudagur, 15 Febrúar 2010 14:13 |
|
SAMFOK hafa ráðið nýjan framkvæmdastjóra til starfa. Bryndís Jónsdóttir tekur við starfinu af Guðrúnu Valdimarsdóttur sem sagði starfi sínu lausu þegar hún tók sæti á lista fyrir komandi borgarstjórnarkosningar.
Bryndís hefur áður starfað sem styrktar- og sjúkrasjóðsfulltrúi hjá Bandalagi háskólamanna, upplýsingafulltrúi hjá Námsgagnastofnun, grunnskólakennari, dagskrárgerðarmaður og blaðamaður. Bryndís er að ljúka MS í Mannauðsstjórnun við Háskóla Íslands en hefur áður lokið B.ed gráðu við Kennaraháskóla Íslands. Bryndís er gift og á þrjú börn á aldrinum 3ja til 16 ára.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Fimmtudagur, 11 Febrúar 2010 14:35 |
|
Foreldrar standa oft ráðalausir gagnvart þeim vanda sem skapast í eineltismálum og vita ekki hvert þeir geta snúið sér. Samfok hefur tekið saman ábendingar til foreldra grunnskólabarna í Reykjavík í samvinnu við Menntasvið Reykjavíkur.
Ef grunur vaknar um að barn verði fyrir einelti eða sé gerandi í einelti er nauðsynlegt að foreldrar gefi sér góðan tíma og ræði við börn sín. Með því að hlusta á barnið og sýna samkennd og stuðning er auðveldara að átta sig á hvernig í pottinn er búið. Einelti ber að taka alvarlega en það er mikilvægt að rugla því ekki við samskiptaerfiðleika.
|
|
Lesa meira...
|
|
Skráning á frístundaheimili |
|
Föstudagur, 05 Febrúar 2010 12:19 |
|
Mánudaginn 8. febrúar verður opnað fyrir skráningar barna á frístundaheimili fyrir skólaárið 2010-2011. Skráning fer fram með rafrænum hætti á Rafrænni Reykjavík. Líkt og áður njóta börn sem hefja nám í fyrsta bekk forgangs. Öðrum er úthlutað vistun í tímaröð umsókna. Símaver borgarinnar (411-1111) aðstoðar fólk við innskráningu og umsóknir í Rafrænu Reykjavík. Einnig er hægt að leita til þjónustumiðstöðva borgarinnar og frístundamiðstöðva. |
|
|
Þriðjudagur, 09 Febrúar 2010 15:56 |
|
Menntaráð Reykjavíkur efnir árlega til hvatningarverðlauna fyrir þróunar- og nýbreytnistarf í grunnskólum Reykjavíkur. Verðlaunin eru veitt fyrir verkefni sem þykja skara fram úr og fer afhending verðlaunanna fram í júní ár hvert. Dómnefnd er skipuð fulltrúum menntaráðs og Menntasviðs auk fulltrúa sem tilnefndir eru af Kennarafélagi Reykjavíkur og einum fulltrúa Samfoks.
|
|
Lesa meira...
|
|
Foreldrar mótmæla niðurskurði |
|
Þriðjudagur, 02 Febrúar 2010 14:28 |
|
Foreldrar grunnskólabarna í Reykjavík eru, margir hverjir, áhyggjufullir vegna yfirvofandi niðurskurðar í grunnskólum borgarinnar og óttast að hann muni koma hart niður á gæðum skólastarfs.
Stjórn foreldrafélags Laugarnesskóla tekur afgerandi afstöðu gegn niðurskurðinum og biðlar til foreldra. ,,Nú verðum við foreldrar að láta í okkur heyra. Allir málsmetandi einstaklingar eru sammála um mikilvægi menntunar og að góð menntun eykur lífsgæði til framtíðar. Við viljum auka lífsgæði barna okkar. Við viljum að börnin okkar fái fjölbreytta og góða menntun. Við viljum tryggja að þau fái undirstöður til að reisa sína framtíð á.“
|
|
Lesa meira...
|
|
|
<< Byrja < Fyrra 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 8 af 22 |