advert 1
advert 2
advert 3

Dagatal

<<  September 2010  >>
 Má  Þr  Mi  Fi  Fö  La  Su 
    1  2  3  4  5
  6  7  8  9101112
13141516171819
20212223242526
27282930   

Hugtök

Borði
Tannverndarvika
Föstudagur, 29 Janúar 2010 11:35
Hin árlega tannverndarvika, sem Lýðheilsustöð stendur fyrir, er dagana 1.- 5. febrúar. Að þessu sinni er athyglinni beint sérstaklega að tannvernd barna. Nýtt, lifandi fræðsluefni hefur verið útbúið, einkum ætlað foreldrum og öðrum sem sinna tannvernd og tannhirðu barna. Að auki er á ýmsan annan hátt vakin athygli á mikilvægi tannverndar og góðrar tannhirðu, s.s. með miðlun upplýsinga og fræðslu til foreldra, allra skóla, heilsugæslu, tannlækna og fleiri. Sjá nánar á www.lydheilsustod.is
 
Koffínneysla barna og unglinga
Föstudagur, 29 Janúar 2010 11:31
Í ljósi þess að talsvert framboð er nú af drykkjarvörum og öðrum matvælum sem innihalda koffín telur Lýðheilsustöð ástæðu til að hvetja foredra og aðra til að fylgjast vel með koffínneyslu barna og unglinga. Koffín veldur útvíkkun æða, örari hjartslætti og auknu blóðflæði til allra líffæra. Einnig hefur koffín áhrif á öndun, meltingu og þvagmyndun. Mikil neysla á koffíni getur valdið höfuðverk (sem er líka fráhvarfseinkenni), svima, skjálfta, svefnleysi, hjartsláttartruflunum og kvíða. Sjá nánar á www.lydheilsustod.is
 
Þjóðfundur um menntamál
Þriðjudagur, 26 Janúar 2010 13:07

Þjóðfundur um menntamál 2010 verður haldinn laugardaginn 13. febrúar kl. 9:30-15:30.

Fundurinn er í beinu framhaldi af Þjóðfundi 2009 og byggir á hugmyndafræði hans.

Á þjóðfundi um menntamál er ætlunin að stíga markviss skref í átt að mótun stefnu

þjóðarinnar í málum er varða menntun íslenskra barna á leik- og grunnskólastigi.

Lesa meira...
 
8,2 í meðaleinkunn en er barnið hamingjusamt?
Föstudagur, 29 Janúar 2010 10:51
Ólafur Stefánsson fyrirliði íslenska landsliðsins í handbolta pælir í einkunnum barna og skólamálum almennt. Kennari segir að barnið þitt hafi fengið fínar einkunnir. 8,2 en er barnið hamingjusamt, sýnir það frumkvæði, dug og þor. Takið eftir TE - Esjan á hvolfi, ljósblár Landspítali og pastastafir.
Lesa meira...
 
75% grunnskólabarna ganga í skólann
Föstudagur, 22 Janúar 2010 13:56

Ferðaleiðir grunnskólabarna í Reykjavík eru kortlagðar af nákvæmni um þessar mundir. Þrjú af hverjum fjórum börnum ganga í skólann sinn í Reykjavík. Önnur eru keyrð, hjóla eða ferðast með öðrum hætti. Þetta kemur fram í viðamikilli könnun á leiðavali, öryggi og ferðamáta barna í skólann.

Lesa meira...
 
<< Byrja < Fyrra 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 9 af 22
Borði
Borði

Hverjir eru tengdir ?

Það er/u 2 gestir inni
Borði

Skráning í klúbba

Fréttablað SAMFOK


Viltu HTML?