|
Barnamenningarhátíð í vor |
|
Föstudagur, 22 Janúar 2010 10:48 |
|
Efnt verður til Barnamenningarhátíðar í Reykjavík á vordögum. Hátíðin fer fram víðsvegar um borgina; ofan í sundlaugum, uppi í Esjuhlíðum, á skólalóðum, á öldum ljósvakans og á götum úti. Hátíðin fjallar um menningu barna, menningu með börnum og menningu fyrir börn. Hún getur inniborið matarmenningu og málþing, íþróttir og inniveru, leiklist og listdans og í rauninni alla fleti menningar, bara að það sé skýr tenging við börn og barnamenningu.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Miðvikudagur, 20 Janúar 2010 12:36 |
|
Niðurstöður rannsóknar á lífsstíl 7-9 ára barna sýna að hægt er að auka hreyfingu og stuðla að hollara mataræði með samstilltu átaki heimila og skóla. Rannsóknin Lífsstíll 7-9 ára barna er samstarfsverkefni sem vísindamenn og framhaldsnemar við Menntavísindasvið og Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands unnu að á árunum 2006-2008. Verkefnið miðaði að því að auka heilbrigði barna og var það unnið í samstarfi við Menntasvið Reykjavíkurborgar og sex grunnskóla í borginni. Sjá nánar á http://vefsetur.hi.is/lifsstill/ |
|
Má banna börnum að hjóla í skólann? |
|
Föstudagur, 15 Janúar 2010 14:32 |
|
Nokkrir skólar í borginni hafa sett það í sínar skólareglur að meina börnum í yngstu bekkjunum að koma á hjóli í skólann. Menntaráð fjallaði um hvort skólastjórum væri heimilt að beita slíku banni. Fram kom að ekki eru til neinar reglur sem beinlínis banna hjólreiðar barna að vetrarlagi.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Heildarmat á grunnskólum Reykjavíkur |
|
Miðvikudagur, 20 Janúar 2010 12:28 |
|
Á undanförnum þremur árum hefur farið fram heildarmat á skólastarfi í grunnskólum í Reykjavík. Óhætt er að segja að þessi vinna hafi orðið til að efla skólastarf, en matið miðar að því að bæta nám og kennslu og styrkja innviði skólanna. Þetta er gert annars vegar með sjálfsmati skólanna og hins vegar með því að veita skólastjórnendum upplýsingar um gæði skólastarfs og hvernig skólar framfylgja stefnu borgarinnar í menntamálum.
|
|
Lesa meira...
|
|
2010 verði tileinkað velferð barna í Reykjavík |
|
Miðvikudagur, 06 Janúar 2010 10:00 |
|
Á fundi borgarstjórnar í gær var samþykkt einróma tillaga borgarfulltrúa Vinstri grænna um að árið 2010 verði tileinkað velferð barna í Reykjavík. Í greinargerð með tillögunni segir að velferð barna sé að sjálfsögðu viðvarandi verkefni sveitarstjórna, en við þær aðstæður sem nú eru uppi sé ástæða til að leggja enn sterkari áherslu þar á.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
<< Byrja < Fyrra 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 10 af 22 |