| Foreldrarölt |
|
|
|
| Fimmtudagur, 02 Október 2008 09:30 |
Til hvers röltum við?Fyrst og fremst vegna þess að okkur er ekki sama. Við viljum varna því að unglingarnir okkar lendi í vanda. Við viljum líka koma í veg fyrir hópamyndanir eftir lögleglan útivistartíma. Nærvera fullorðinna þar sem unglingar hafa safnast saman hefur róandi og fyrirbyggjandi áhrif. Líkur á að unglingarnir lendi í aðstæðum sem ógna þeim eða hræða minnka þegar fullorðnir eru nálægir. Nærvera fullorðinna gefur unglingunum tækifæri til að leita aðstoðar ef á þarf að halda. Af hverju þú?Langflestir foreldrar standa vel að sínum unglingum og þeir eru ekki úti eftir að lögbundnum útivistartíma lýkur. Margir spyrja því hvers vegna þeir eigi að fara út af heimilinu frá sínu barni til að passa annarra manna börn? Með því að taka þátt í foreldrarölti höfum við áhrif á hverfisbraginn og það félagslega umhverfi sem við, og börnin okkar, búum við. Því færri sem nota vímuefni, eru lagðir í einelti eða beittir einhvers konar ofbeldi, því betra og öruggara er umhverfi okkar. Við berum öll ábyrgð á okkar nánasta umhverfi og eigum að sýna þeim sem eiga í vanda að okkur er ekki sama. Auk þessa kynnumst við fleiri foreldrum, við höfum gott tækifæri til að ræða sameiginleg áhugamál og, síðast en ekki síst, við eigum saman ánægjulega stund á heilsubótargöngu um hverfið okkar! Hvernig á að hegða sér á foreldrarölti?
Eðlilegt er að sérstakur rölthópur í hverjum skóla haldi utan um röltið í heild sinni, skipti röltinu niður á bekki, en ábyrgðinni á þátttöku sé dreift. Eðlilegt er að bekkjarfulltrúar, eða rölthópur í hverjum bekk, skipuleggi þátttöku foreldranna og skipti þeim niður á daga. Heppilegast er að foreldraröltið hefjist alltaf á sama stað og á sama tíma, t.d. kl. 22:00. Þá eiga þeir, sem ekki eru skráðir á foreldraröltið en vilja gjarnan vera með, auðveldara með að taka þátt. Gott er að hver hópur skili skýrslu, annað hvort í þar til gerða bók eða á lausum blöðum. Þetta auðveldar þeim sem á eftir koma að átta sig á stöðunni í hverfinu.
Á skrifstofu SAMFOK er hægt að fá barmmerki, bækling, upplýsingar og aðstoð við skipulagningu foreldrarölts.
|







