advert 1
advert 2
advert 3

Hugtök

Borði
Nýtt menntaráð Reykjavíkurborgar Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Föstudagur, 18 Júní 2010 12:41

Kosið var í menntaráð á fyrsta fundi nýrrar borgarstjórnar þriðjudaginn 15. júní. Oddný Sturludóttir verður formaður nýs menntaráðs, sem jafnframt mun fara með málefni leikskólaráðs. SAMFOK hefur átt áheyrnarfulltrúa á menntaráðsfundum.

Stefnt er að því að Leikskóla- og menntaráð verði sameinuð og heiti "menntaráð" enda sé leikskólastigið fyrsta skólastigið og mikilvægt að skapa tengsl milli menntunar allt frá upphafi leikskólagöngu til loka framhaldsnáms segir í samstarfssamningi Besta flokksins og Samfylkingar.

Aðalmenn í nýju menntaráði:
Oddný Sturludóttir, formaður
Eva Einarsdóttir
Óttarr Ólafur Proppé
Stefán Benediktsson
Kjartan Magnússon
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir
Líf Magneudóttir


Til vara:
Erna Ástþórsdóttir
Pétur Magnússon
Ingi Bogi Bogason
Hanna Lára Steinsson
Marta Guðjónsdóttir
Rúna Malmquist
Sigríður Pétursdóttir