| Saman í sólinni - fjölskyldan í fyrirrúmi |
|
|
|
| Föstudagur, 25 Júní 2010 12:18 |
|
Örsögu samkeppnin er fyrir unglinga á aldrinum 14-16 ára. Langar okkur að fá sendar skemmtilegar sumarleyfissögur þar sem fjölskyldan kemur við sögu, hvort sem sagan gerist úti í garði heima eða á fjarlægum slóðum. Góðar minningar verða til alls staðar! Þetta þarftu að gera: Í sumar mun SAMAN hópurinn einnig standa fyrir skemmtilegum degi á Akureyri þann 1. júlí í samstarfi við Vinnuskóla Akureyrar. Tilefnið er að varpa hulunni af „SAMAN sólinni“ sem listakonan Jonna ásamt nemendum í vinnuskólanum hafa unnið að. Eftir skrúðgöngu þar verður Sólinni komið fyrir við hátíðlega athöfn í Gilinu. Sólinni er svo ætlað að ylja bæjarbúum um hjartarætur út sumarið og minna á ánægjulegar samverustundir fjölskyldunnar. Að athöfninni lokinni verður svo blásið til grillveislu fyrir gesti og gangandi og óvæntir gestir munu taka lagið. |








