advert 1
advert 2
advert 3

Hugtök

Borði
Weblinks
Samstarf um barnið Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Sunnudagur, 21 September 2008 15:12
 
Í Aðalnámskrá grunnskóla (1999) segir að samstarf skóla og heimila eigi að vera á þremur sviðum, samstarfið um 
skólann sem stofnun, samstarfið um einstaka hópa eða bekki og loks samstarfið um hvert einstakt barn og skuli megin 
áherslan vera á síðastnefnda þáttinn. Allir geta verið sammála um að ekkert sé foreldrum dýrmætara en velferð barna 
þeirra og fjöldi rannsókna segir okkur að það séu óumdeilanlega foreldrarnir sem hafi mest áhrif á líf barnanna 
þ.á.m. nám og líðan. Ábyrgð foreldra er því mikil. Góðir foreldrar láta sig varða um allt sem lýtur að velferð barna 
sinna og eiga hlutdeild í öllum mikilsverðum ákvörðunum sem snerta barnið. Það á einnig við um starf barnsins í 
skólanum. Einn veigamesti stuðningsaðili foreldra í uppeldi og menntun barnsins er skólinn. Auk vaxandi mikilvægis 
menntunar hefur skólasamfélagið umtalsverð áhrif á félagslega stöðu og þróun sjálfsmyndar barnsins. Velferð barnsins
verður best tryggð þegar hinir fullorðnu standa saman um hagsmuni barnsins og stefna í sömu átt. Það veitir barninu 
aukið öryggi að finna gagnkvæmt traust og virðingu milli hinna fullorðnu og samræmi í gildum og væntingunum heima 
fyrir og í skólanum. Eðlilegt er að samstarf foreldra og kennara snúist um markmið og inntak námsins, kennsluhætti, 
heimanám, samskipti, líðan og hegðun. Gott samstarf einkennist af gagnkvæmum upplýsingum um stöðu barnsins, 
samræðu, samvinnu þar sem stefnt er að sameiginlegu markmiði sem báðir/allir aðilar taka ábyrgð á. Í samstarfinu er 
kennarinn leiðtogi á jafnræðisgrunni þar sem foreldrar hafa réttindi jafnt sem skyldur. Markmið samstarfsins er velferð 
barnsins þíns. Til að styðja barn þitt getur þú :Sýnt áhuga á starfi barnsins og líðan í skólanum með því að spyrja það.
Hvatt barnið til gera sitt besta og styðja það eftir þörfum
  • Verið vakandi fyrir því sem barnið gerir vel og hrósa því
  • Talað jákvætt um nám, samskipti og starfið í skólanum
  • Aflað upplýsinga frá skólanum ef eitthvað er óljóst
  • Veitt kennaranum upplýsingar sem komið geta barninu að notum
  • Kynnt þér upplýsingar um starf bekkjarins/nemendahópsins og skólans
  • Leitað leiða til að kynnast skólafélögum barnsins og foreldrum þeirra