|
Hlutverk Með nýjum lögum um grunnskóla nr. 91/2008 urðu þær breytingar að foreldrafélög eru lögbundin og skulu starfa við alla grunnskóla. Skólastjóri er ábyrgur fyrir stofnun þess og sér til þess að félagið fái aðstoð eftir þörfum. Hlutverk foreldrafélags er að styðja skólastarfið, stuðla að velferð nemenda og efla tengsl heimila og skóla. Foreldrafélag hvers skóla setur sér starfsreglur, m.a. um kosningu í stjórn félagsins og kosningu fulltrúa í skólaráð. Starfshættir Til að styðja skólastarfið, stuðla að velferð nemenda og efla tengsl heimila og skóla getur foreldrafélagið lagt sitt af mörkum með ýmsum hætti: - Með verkefnum sem stuðla að vellíðan og velferð nemenda og bættum námsárangri
- Með verkefnum sem styrkja skólabraginn
- Vera virk og taka vel í þátttöku í skólastarfinu
- Hvetja og hrósa fyrir það sem vel er gert
- Bjóða upp á vettvang fyrir foreldra til að fræðast um og ræða sameiginleg hagsmuna-eða áhugamál
- Virkja alla foreldra til þátttöku í samstarfi
- Skipuleggja og halda utanum formlegt samstarf á bekkjarplani
- Sjá til þess að sameiginleg verkefni foreldrafélagsins séu framkvæmd og allir virkjaðir til þátttöku
Foreldrafélag skulu setja sér starfsreglur, þ.m.t - hvernig standa á að kosningu í stjórn félagsins
- hvernig standa á að kosningu fulltrúa foreldra í skólaráð
Eðlilegt er að fulltrúar eða stjórn foreldrafélags móti drög að slíkum starfsreglum. Þær séu síðan kynntar á aðalfundi og bornar undir atkvæði fundarins. Foreldrar grunnskólabarna eru sjálfkrafa félagar í foreldrafélagi viðkomandi skóla meðan á skólagöngu barna þeirra stendur. Foreldrafélagið getur óskað eftir frjálsum framlögum félagsmanna en ekki er hægt að skylda foreldra til að greiða félagsgjöld. Mikilvægt er að gera foreldrum grein fyrir hvernig framlögin eru notuð. Stjórn foreldrafélagsins Gerir starfsáætlun – drög lögð fyrir samstarfsaðilana Hefur eftirlit með framkvæmd verkefna starfsáætlunar Heldur utan um gögn, pappír og rafræn Ber ábyrgð á að nýjir fulltrúar taki við kyndlinum Starfsáætlun Mikilvægt er að starfsáætlunin taki mið af áhugasviði, þekkingu og reynslu skólasamfélagsins. Dæmi um starfsáætlun: | Júní | Lok maí/byrjun júní fyrsti fundur nýrrar stjórnar með fráfarandi stjórn, stjórnarmenn skipta með sér verkum, leggja fyrstu drög að starfsáætlun | | Ágúst | Stjórnarfundur, fundartímar stjórnar ákveðnir, bekkjarfulltrúafundur undirbúinn (haldinn áður en námsefniskynningar byrja), foreldrarölt skipulagt, kynning f. foreldra 6 ára barna/kosning bekkjarfulltrúa í 1. bekk | | September | Stjórnarfundur; skólastjóra, umsjónarmanni félagsstarfs boðið, drög að starfsáætlun foreldrafélagsins rædd. Í byrjun september fulltrúaráðsfundur, hlutverk bekkjarfulltrúa skýrt, drög að starfsáætlun rædd. Stjórn kynnir starfið á námsefniskynningu, bekkjarfulltrúar ræða vetrarstarfið í sínum bekk. Skólafærninámskeið fyrir foreldra 6 ára barna – fulltrúar foreldrafélagsins taka þátt. | | Október | Stjórnarfundur, samráðsfundur með skólaráði. | | Nóvember | Stjórnarfundur, undirbúningur og framkvæmd bekkjarfulltrúafundar, farið yfir starfið, undirbúa og framkvæma jóla- eða aðventutengt verkefni. | | Desember | Stjórnarfundur | | Janúar | Stjórnarfundur, skólastjóra, umsjónarmanni félagsstarfs boðið, undirbúningur og framkvæmd bekkjarfulltrúafundar | | Febrúar | Stjórnarfundur, samráðsfundur með skólaráði | | Mars | Stjórnarfundur, huga að aðalfundi | | Apríl | Stórnarfundur, undirbúningur og framkvæmd bekkjarfulltrúafundar, hverjir gefa kost á sér áfram, bekkjarfulltrúar og stjórnarmenn? Búið að finna fólk (stjórnarmenn og bekkjarfulltrúa) sem vill gefa kost á sér FYRIR aðalfund, kynna í fundarboði | | Maí | Lok apríl/byrjun maí aðalfundur; skýrsla stjórnar (nefnda), skýrsla fulltrúa foreldra í skólaráði, kosningar stjórnarmanna og fulltrúa foreldra í skólaráð. | Skipulagning foreldrastarfs Ýmsar leiðir hafa verið farnar í skipulagningu foreldrastarfs og hafa þær kosti og galla. SAMFOK mælir með því að það sé alltaf haft að leiðarljósi að sem flestir foreldrar séu virkjaðir til þátttöku. Með virkri þátttöku kynnast foreldrar öðrum foreldrum og börnum þeirra og þekking þeirra á skólastarfinu eykst. Rannsóknir sýna að sterkt tengslanet foreldra stuðlar að betri líðan allra nemenda í bekknum, betri námsárangri og minni líkur eru á að þeir nemendur velji neyslu áfengis og annarra vímuefna. Mikilvægt er að sameiginlegum verkefnum foreldrafélagsins, t.d. haust- eða vorgleði, aðventukvöldi eða jólaföndri, öskudagsgleði, páskabingói, sé skipt niður á alla foreldra í skólanum. Auk þess skipti bekkjarfulltrúar verkefnum innan bekkjarins (bekkjarkvöldum, gönguferðum, skipulagningu og utanumhaldi á vinahópum, heimsóknum foreldra í bekkinn o.s.frv.) niður á foreldra. Með þessum hætti er hægt að tryggja að allir foreldrar komi að undirbúningi og framkvæmd eins verkefnis yfir veturinn.
|