advert 1
advert 2
advert 3

Hugtök

Borði
Upplýsingar
Foreldrar í skólabyrjun Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Þriðjudagur, 31 Ágúst 2010 12:28

Haustin eru heillandi tími. Skólarnir eru að hefja störf að nýju eftir sólríkt sumar. Eftirvænting ríkir meðal skólabarnanna – augnagotur og umhugsun um hvað veturinn muni bera í skauti sér. Það er ekki laust við að foreldrarnir fái líka fiðring í magann, kannski af gömlum vana.

 

Öll viljum við að börnum okkar líði vel í skólanum og námsárangur þeirra sé góður. Rannsóknir sýna að þátttaka foreldra í skólastarfi er áhrifamesti þátturinn þegar kemur að líðan og árangri nemenda.

Lesa meira...
 
Fulltrúi Samfok í nýjum stýrihópi Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Miðvikudagur, 18 Ágúst 2010 09:52

Menntaráð Reykjavíkur ætlar að vinna markvisst að því að efla námsárangur drengja í grunnskólum. Samkvæmt könnun Háskóla Íslands sem gerð var árið 2008 þykir 67 prósentum drengja í 1. bekk gaman að læra en 83 prósentum stúlkna.

Lesa meira...
 
Foreldrar, auðlind í skólastarfi Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Mánudagur, 16 Ágúst 2010 15:31

Nú þegar grunnskólar taka senn aftur til starfa kemur enn til kasta foreldra að hafa jákvæð áhrif á skólastarf með aðkomu sinni að því. Í öllum grunnskólum eiga að vera starfandi foreldrafélög, í öllum bekkjum eru bekkjarfulltrúar og foreldrar eiga einnig fulltrúa í skólaráðum grunnskólanna. Rannsóknir hafa sýnt að þegar foreldrar taka virkan þátt í skólastarfi er frammistaða barna þeirra betri, sjálfstraustið meira og viðhorfið jákvæðara.

Láttu ekki þitt eftir liggja, foreldrasamstarf er bæði skemmtilegt og gefandi og í þágu barnsins þíns.

 
Saman í sólinni - fjölskyldan í fyrirrúmi Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Föstudagur, 25 Júní 2010 12:18

ForsíðaUndanfarin sumur hefur SAMAN hópurinn staðið fyrir ýmsum uppákomum þar sem minnt er á mikilvægi samveru fjölskyldunnar. Þetta árið er engin undantekning og verður annars vegar staðið fyrir skemmtidagskrá á Akureyri og hins vegar haldin skemmtileg örsögusamkeppni þar sem vegleg verðlaun eru í boði fyrir alla fjölskylduna.

Lesa meira...
 
Nýtt menntaráð Reykjavíkurborgar Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Föstudagur, 18 Júní 2010 12:41

Kosið var í menntaráð á fyrsta fundi nýrrar borgarstjórnar þriðjudaginn 15. júní. Oddný Sturludóttir verður formaður nýs menntaráðs, sem jafnframt mun fara með málefni leikskólaráðs. SAMFOK hefur átt áheyrnarfulltrúa á menntaráðsfundum.

Lesa meira...
 
<< Byrja < Fyrra 1 2 3 4 5 6 Næsta > Endir >>

Síða 1 af 6