|
Kynningarfundir fyrir fulltrúa foreldra í skólaráðum
Í kjölfar kynningarfunda sem SAMFOK, Menntasvið, Kennarafélag Reykjavíkur og Skólastjórafélag Reykjavíkur stóðu fyrir í byrjun árs 2009 mun SAMFOK áfram bjóða fulltrúum foreldra í skólaráðum stuðning og aðstoð. Til að undirbúa skólaráðsfulltrúa verður farið yfir eftirfarandi atriði: Hvert er hlutverk skólaráða? Hvert er hlutverk fulltrúanna? Hvar er hægt að nálgast gögn sem nýtast í starfinu? Farið yfir reglugerð fyrir skólaráð. Lögð verður sérstök áhersla á nægur tími gefist til umræðna.
1. október kl. 20:00 – 22:00; hjá SAMFOK, Suðurlandsbraut 24, 3. hæð
Námskeið fyrir stjórnir foreldrafélaga
Hlutverk foreldrafélaga með tilkomu nýrra grunnskólalaga; skipulagning starfsins, verkaskipting, mikilvægi þess að virkja sem flesta og mögulegar leiðir til þess verða áhersluatriði á námskeiðinu. Námskeiðið stendur yfir eitt kvöld og er boðið upp á tvo valmöguleika:
18. september kl. 20:00 – 22:00; hjá SAMFOK, Suðurlandsbraut 24, 3. hæð
24. september kl. 20:00 – 22:00; hjá SAMFOK, Suðurlandsbraut 24, 3. hæð
Námskeið fyrir bekkjarfulltrúa
Af hverju ættum við að taka þátt? Hvert er hlutverk bekkjarfulltrúa? Hvernig virkjum við aðra? Þetta eru spurningar sem brenna á flestum þeim sem taka að sér forystuhlutverk í foreldrasamstarfi og verða þær í brennidepli á námskeiðinu. Námskeiðið stendur yfir eitt kvöld og er boðið upp á tvo valmöguleika:
16. september kl. 20:00 – 22:00; hjá SAMFOK, Suðurlandsbraut 24, 3. hæð
29. september kl. 20:00 – 22:00; hjá SAMFOK, Suðurlandsbraut 24, 3. hæð |